30. júní 2006 klukkan 07:58
Sæl veriðið... langt síðan síðast.
Já, jæja... síðustu 10 dagar hafa verið heldur strembnir. Elfa Guðrún, dóttir Jónu systur og Reynis mágs sem lést fyrir viku þá aðeins dagsgömul var jörðuð í dag. Athöfnin var mjög falleg og sá maður á mætingu að fólk sýnir mikla samúð og vil ég þakka öllum sem sýnt hafa skilning og stuðning síðustu daga. Þetta er aldrei auðvelt.
En að öðru, Við í ball bandi Ínu Valgerðar erum komin á fullt, spiluðum í sjallanum akureyri síðustu helgi, það var alveg geysilegt stuð og svo núna um helgina finnur maður að þetta ball sumar er byrjað af alvöru því núna eru 3 gigg á 3 stöðum á 2 dögum um helgina. Við byrjum á því að keyra eldsnemma í fyrramálið alla leið til Hólmavíkur þar sem við spilum 2svar. Þar eru svokallaðir Hamingjudagar á Hólmavík í gangi og við spilum fyrst um kvöldmat í klst. og svo aftur frá 10 - 12 fyrir eldra lið. Geysilegt stuð alveg hreint. næsta dag þurfum við svo að keyra á Vinhólmameli (hvað sem það heitir) allavega á þetta hestamannamót sem er þarna í skagafirði og spila þar um 3 leytið og svo verður bara brunað á Siglufjörð og spilað á balli þar um kvöldið, maður bjóst kannski ekki við að það væri eitthvað af fólki þar þegar að hestamannamótið er þarna rétt hjá, en þeir þarna lofa allavega einhverju og svo er trygging á því balli þannig að þetta er allt í gúddý.
Síðustu helgi var ég á ættarmóti í Bárðardal, ekkert skilt mér.. föðurættin hennar Eyrúnar var þar samankomin að leika sér og það var bara alveg hin ágætis afþreying að vera þar... gat reyndar lítið tekið þátt í aðal dagskránni þar sem að ég þurfti alltaf að vera að fara í burtu. fyrst á Föstudagskvölinu til húsavíkur til að taka nauðsynlega loka æfingu fyrir gigg og svo á laugardeginum til þess að fara að spila í sjallanum, lét Eyrúnu bara í það að hita tjaldið þannig að það var orðið þæginlega þegar ég kom seinna um nóttina..... skeeeemmtilegur ég

svo uppfærði ég könnunina hér til vinstri svona útaf því að sum liðin þarna eru ekki enþá með..... eins og t.d. aumingjarnir í Hollandi sem þurftu að drullast til að tapa á móti Portugal!!!??!?!?! jæja jæja... ég held þá bara með Englandi það sem eftir er..... og svo er Brasilía varaskeyfan eftir það!
sælar....
Reynir Aðalsteinn Hannesson
21. júní 2006 klukkan 04:45
Síðastliðinn sólarhringur er búinn að vera sá erfiðasti sem ég hef lifað, hann byrjaði á mikilli gleði en endaði í mikilli sorg..
Ég samdi lítið ljóð fyrir litlu, sætu frænku...
Elfa Guðrún ReynisdóttirVið kysstum þig bless
eitt af öður,
Í móður armi þú varst
svo friðsæl hjá mömmu.
Að kveðja svo fljótt
var ekki á dagskrá,
en Guð hafði gert upp sinn hug
þeir deyja ungir sem hann elskar hvað mest!
Tileinkað: Elfu Guðrúnu Reynisdóttur
fædd 19. jún. 2006
látin 20. jún 2006
Reynir Aðalsteinn Hannesson
17. júní 2006 klukkan 00:33
Sælt veri fólkið... langt síðan síðast, jújú... en svona er þetta.. mikið að gera hjá mér þessa dagana, vinna, vinna, vinna, æfingar, æfingar og ýmislegt!!
En það helst sem er að frétt af mér þessa stundina er þetta:
Var bara að detta inn úr dyrunum eftir að hafa verið í þvílíkri myndatöku skal ég segja ykkur!! Þetta var nefninlega myndataka fyrir plaggöt sem að við í ´Hljómsveit Ínu erum að gera til þess að auglýsa böll og annað í sumar... ýkt töff
Hróibjartur (Hrói) á örkinni fór með okkur í smá ferðalag um bæinn til þess að taka myndir við hinar og þessar aðstæður og má þar helst nefna, á klettsbrún, uppi í risa bensíngeymi, hlaupandi um í lyngi og á trampólíni... Veðrið var kannski ekki það besta, mikið rok en það var í lagi þar sem að myndirnar áttu að túlka mikinn æsing og rokið hjálpaði stundum bara til við það sem var fínt. Svo er bara að sjá afraksturinn sem á að vera klár á þriðjudag en þá fara plaggötinn í dreifingu fyrir Sjalla ballið sem við höldum næstu helgi (24 júní)!!
Í gær fór ég í klippingu, var eitthvað að sendlast í vinnunni... jújú maður er núna kominn á sendilinn hjá Flytjanda og verð í því alla næstu viku líka... var að fara með einhverjar vörur í Metro, og pantaði mér svo bara klippingu uppá grínið í leiðinni (þurfti reyndar að fara í klippingu) en í einhverju flipp kasti ákvað ég bara að klippa mig stutt, og afraksturinn má sjá á meðfylgjandi mynd!! endilega kommentið á nýja lookið, betra eða verra?
Síðasta Mánudag fór ég til akureyrar í aldeilis skemmtilega ferð... en ég tók mér semsagt frí í vinnunni til þess að fara í Fluglæknisskoðun, og það er nú engin smá skoðun skal ég segja ykkur!
Byrjaði á því að fasta frá miðnætti kvöldið áður og míga í dollu þegar ég vaknaði, því að ég átti að koma með þvagprufu.... Mjög skemmtilegt að keyra svo með hana vogla í dollu hliðiná sér alla leið til Akureyrar... en ég setti dolluna nú í hvítann poka svo að þetta væri ekki eins kjánalegt!
Mætti á Spítalann um 9 og fór þá í blóðprufu, úff... þetta var ekkert mál þegar maður leit undann.. fyrst fékk stunguna og ekkert mál en svo þurfti ég að asnast til að kíkja á hvað væri verið að gera við hendina á mér á meðan á þessu stóð og þá fékk maður svimann.... að sjá blóðið spítast í eitthvað plast hylki er mjög æsandi
jæja, fyrsti hlutinn af mörgum búinn... mig svimaði svoldið eftir þetta en eftir að ég fékk eitthvað að éta í langann tíma þá jafnaði ég mig fljótt.. svo var það öndunarprófið, gekk bara mjög vel þar að sögn hjúkkunnar, alveg fullkomið. næst var Hjartalínurit og þar sást enginn galli á ferð og svo var mesta vesenið.... Heilalínurit... úff!!! þegar hjúkkan sagði mér að þetta myndi taka klst hélt ég að hún væri nú að grínast, en neinei... byrjað var á því að setja eitthvað feiti útum allt í hársvörðin og svo 25 leiðslum stungið í þetta feiti og svo á handabökin! svo átti maður bara að gjöra svo vel og leggjast á bekk, hjúkkan lækkaði ljósin og kveikti á útvarpinu... agalega kósý hjá okkur tvem inní þessu litla herbergi... úúúúú.... (ekkert að óttast Eyrún).. ég lá þarna í um 20 mín og á 5 mín fresti voru æfingar gerðar. Alltaf átti maður að liggja með augun lokuð, svo átti maður að blikka hratt augunum í mínotu, næst átti ég að anda hratt og djúpt í 3 mín og loks stillti hún flassi upp fyrir framan augun á mér og lét það blikka beint í augun, fyrst hægt og svo hraðaði hún alltaf á því og maður átti að skiptast á því að hafa augun lokuð eða opin og shitt hvað þetta var óþægilegt, sérstaklega í endann þegar flassið var á milljón, maður táraðist við það! með þessi var verið að kanna hvort ég væri nokkuð flogaveikur eða þess háttar en hún sagði að ég hafi staðið mig mjög vel og ekkert óeðlilegt hafi gerst, svo sá ég seinna að hún skrifaði í ástand á skýrslu um mig: "hraustu" öss!! skilst að það sé topp einkuninn í þessu, en maður fær samt ekki niðustöður úr, þvag og blóðprufu strax og heldur ekki úr heilalínuritinu. Næst var það Röntgen, teknar voru 2 myndir af lungunum á mér, fyrst beint og svo á hlið. Þarna var komið hádegi og ég fór bara og skellti mér á einn Subway bát. Þegar ég kom út sá ég stöðumælavörð vera að sekta einhvern bíl og hugsaði ég með mér "haha svekkjandi að eiga þennan bíl" en svo var mér litið á minn bíl og þá var sekt þar að fela sig undir rúðuþurkunni!!! grrrr, þá fattaði ég að þessar asnalegu bílastæðaklukkur væru byrjaðar þarna á akureyri... en svoleiðis klukka fylgdi sektinni þannig að ég lenti ekki aftur í svona veseni..
Fór svo í tíma hjá augnlækni sem sagði að ég væri með fullkomna sjón og svo fór ég til eyrnalæknis sem tók mig í hlustunarpróf, ég stressaðist svo upp í því að ég fékk svona hjartslátt í eyrun þegar ég setti headfonana á hausinn (veit ekki hvort fólk þekkir það) en allavega, þá heyrði ég þá alltaf svona hjartslátt með og þá var erfitt að einbeita sér að heyra pípin.. En hann sagði svo að ég hefði alveg stórgóða heyrn og að hún ætti ekki eftir að fella mig... Þannig að ég er bara býsna ánægður með þessa ferð! Þannig að heylsan er í fullkomnu lagi fyrir þetta flugnám nema að ég veit ekki hvernig blóð og þvagprufan koma út og svo heilalínuritið. en maður vonar það besta...
jæja kommentið nú á nýja lookið á kallinum!!!
Bless í bili....!!
Reynir Aðalsteinn Hannesson
07. júní 2006 klukkan 04:58
Jæjajæjajæja, í dag er merkisdagur.... dagsetningin er 06.06.06 eða dagur djöfullsins, Bubbi á fimmtugsafmæli og ég fór í minn fyrsta flugtíma í dag. Söss!!

Já tók mér frí í dag til þess að getað farið inná ak í kynnisflug hjá flugskóla akureyrar. Jónas tók hress á móti mér, en hann er einmitt flugkennari þar. Skrýtið að spá í því að hann sé fættur '84 eða bara 4 árum eldri en ég! En svona getur þetta verið skemmtilegt. Hann sýndi mér þessar helstu grunnreglur sem maður þarf að fara yfir áður en flug hefst, gerðum flugskýrslu og skoðuðum vélina gaumgæfulega, kanna bensín, vængi og þess háttar (nenni nú ekki að lýsa því nánar). Svo hoppuðum við bara uppí vél, hituðum vélina og báðum um brottfararleyfi og brunuðum svo útá braut og í loftið. Ótrúlega skrýtið að fara í loftið á svona vél miðað við venjulega Fokkera og Boeing þoturnar, þessi rella (Piper tomahawk) er svo létt að um leið og hjólin lyftust frá jörðu fór hún að vagga með vindinum. Vindurinn var reyndar svoldið leiðinlegur þennan dag, hann var ekki alveg búinn að ákveða vindáttina þannig að vélin var kannski heldur óróleg miðað við venjulega (sagði Jónas) en þetta reddaðist nú alveg. Það var Sunnanátt þannig að við fórum í loftið í suðurátt, inn fjörðinn (uppí vind) og tókum svo góða vinstri beygju, tókum stefnuna svo á akureyri og þá leyfði hann mér að taka í stýrið! Oooog þar með var flugferillinn hafinn! hehe

... Ég var nú ekkert að leyfa mér að gera einhverjar kúnstir, tókum því bara rólega í 1000 fetum og maður flaug fram og til baka í eyjafirðinum. Þetta stóð í svona hálftíma þar til að við tókum stefnuna á akureyrarflugvöll að nýju.
Eftir flugferðina ætlaði ég svo að panta tíma í læknisskoðun hjá fluglækni en neinei það er víst alveg heljarinnar vesen. En jæja eftir að ritari læknissins hafði útskýrt þetta eitthvað fyrir mér þá fékk ég tíma á mánudagsmorguninn næsta fyrir blóðprufu, hjartalínurit, lungnaröntgen, öndunarpróf ofl. og svo þurfti ég sjálfur að panta tíma hjá augnlækni og svo aftur hjá Eyrnalækni.. Sem betur fer fékk ég tíma hjá þeim líka á mánudag þannig að Mánudagurinn næsti fer bara í það að rúnta á milli lækna og fara í skoðun. Aldeilis gaman! og til að toppa þetta allt, þarf ég að koma á fastandi maga í blóðprufuna og með þvagprufu með mér. HAHA... Þannig að ég þarf að rúnta með þvagprufu úr mér frá Húsavík til akureyrar um morguninn... þvílík snilld

En núna fer líka að styttast óþfluga í að ég eignist lítinn frænda og verði þar af leiðandi móður bróðir! Jújú, Jóna stóra systir er við það að gjóta sínu fyrsta barni! Spáð var að hún myndi fæða í fyrradag en neinei það er ekkert að gerast, fyndið ef hún hefði fætt í dag, þá væri flott kennitala! En það væri kannski ekkert of töff að vera með þessa kennitölu, kennitölu djöfullsins hehe...
Já og meðan ég man, þá hef ég ekki glóru um hvort þetta verði strákur eða stelpa, en ég spái að þetta verði lítill frændi!
Jæja, nóg í bili....
Reynir Aðalsteinn Hannesson
05. júní 2006 klukkan 21:56

Jæja, ætli það sé ekki kominn tími á eitt blog eða svo...
Maður hefur eiginlega mest legið í leti þessa helgi, enda löng (3 daga) helgi og alveg tilvalið að slappa af, hef ekki tekið því svona rólega yfir helgi síðan ég veit ekki hvenar, um jólin eða eitthvað.... maður er alltaf eitthvað að þvælast. En alveg síðustu viku og þessa helgi hefur maður verið bara að gera mest lítið þegar maður er búinn að vinna... Eyrún var í einhverju ferðalagi með bekknum og svo fór hún strax til Grundarfjarðar daginn eftir að hún kom heim úr bekkjarferðinni. uss uss uss, ekki fallegt en á meðan hefur maðru bara verið að gera eitthvað til þess að eyða tímanum, hef gefið mér tíma í að skreppa nokkrum sinnum í fótbolta, rúnta og svo skelltum við Rabbi okkur í golf um daginn.. Tók hringinn á 58 höggum, það er nú ekki góður árangur en ég er alveg sáttur með hann miðað við að ég hef ekki farið í golf síðustu 2-3 árin. En jæja... Í gær hringdi ég svo inná akureyri og pantaði mér tíma í Kynnisflug hjá flugskóla akureyrar, gaman að því! Maður þarf að farað byrja á þessu helvíti

Fékk tíma á morgun (þriðjudag) kl. 11 um morguninn þannig að ég skellti mér bara á það. Þetta verður svona í grófum dráttum þannig að ég fer á flugvöllinn, tala við flugkennarann og hann upplýsir mig um þetta nám sem ég er að farað byrja á og svo tökum við sirka hálftíma flug. einmitt á þessari Piper tomahawk vél sem er hér með þessari færslu. En þetta mun væntanlega vera vélin sem ég mun svo læra á í vetur og kannski eitthvað í sumar! hlakka alveg gríðarlega til.
Jæjajæja, var rétt í þessu að koma af vellinum þar sem að Völsungar mættu Njarðvík í 2 deildinni. Völsungar komust 1-0 yfir á 4 mín með marki frá Boban, Einar fékk svo sitt annað gula spjald og þar með rautt þegar að fyrri hálfleikur var að klárast þannig að Völsungar voru manni færri allann seinni hálfleik, samt náðum við að halda markinu hreinu þar til á 90. mín þegar að Gunni siggi náði að verja boltann með hendi inní teig og víta spyrna dæmd!!!!! Bjössi náði reyndar að verja en enginn gat drullast til að fylgja eftir boltanum og hreinsa þannig að einhver úr Njarðvík var aleinn og náði að setja hann í markið og niðustaðan 1-1 jafntefli!!!! alls ekki sáttur með þetta!!! dómarinn átti líka alveg skelfilegann leik og var alls ekki með völd á þessum leik, sannarlega ekki starfi sínu vaxinn! en það þýðir lítið að væla útaf þessu núna.....
Í Kvöld erum við svo í hljómsveit ínu að fara að spila örfá lög í bíóinu að ég held kl. 20.00 á einhverjum styrktartónleikum sem bera heitið "líf án áfengis" en þetta er eitthvað dæmi sem Elli braga stendur fyrir, þar mun fjöldinn allur af tónlistarfólki koma fram og sýna sig, m.a. við.
En pápi var eitthvað að væla í mér um að fara og negla nokkrar stæður af brettum niðrí vinnu, svona fyrst ég ætla að taka mér frí í vinnunni á morgun til þess að fara í flugtímann og svo vonandi í læknisskoðun ef ég fæ tíma, en maður þarf nú að vera með fyrstaflokks læknisvottorð ef maður ætlar útí þessa atvinnuflugmennsku.
Veriði sæl
Reynir Aðalsteinn Hannesson
29. maí 2006 klukkan 01:44
Góða kvöldið gott fólk, langt síðan síðast. Já ég hef ekki verið að standa mig í þessu blogi, en þetta er allt í góðu hef nóg annað að gera þannig að ég ætla núna í sumar að taka þessu svoldið rólega en koma mjög reglulega með færslur hér!
Það sem er helst í fréttum þessa dagana er það að í gær voru sveitastjórnarkosningar þar sem D listi sjálfstæðisflokks og óháðra fór með sigur hér á Húsavík, eða í "norðurþingi" eins og þetta sameinaða sveitarfélag heitir núna (eða það vann allavega kosninguna í vali á nafni), ég kaus meira að segja þetta nafn (Y). En já varðandi úrslitin í sveitastjórnarkosningunum, þá fékk sjálfstæðisflokkurinn (D) flest atkvæði og 3 fulltrúa, Framsóknarflokkurinn (B) fékk næst flest og 3 fulltrúa, Samfylking (S) fékk 2 fulltrúa og Vinstri grænir (V) fengu 1 fulltrúa! Gaman að segja frá því að aðeins 14 atkvæði skildu að D og B og er þetta í fyrsta sinn sem að Sjálfstæðisflokkurinn vinnur svona sigur í bæjarstjórnarkosningum! Ekkert nema gott um það að segja, en ég kaus einmitt D!! Eftir úrslitin fór ég og frambjóðandinn (Erling) í sigurrúnt um bæinn með Sjálfstæðisflokksfána sem við flögguðum í gríð og erg endaði svo með því að ég festi fánnann aftan í bílinn. Eftir þetta var svo bara rúntað og rúntað, ótrúlega langt síðan ég hef rúntað svona mikið á einu kvöldi! ussss! Tók Eyrúnu uppí og í framhaldi af því kom Stánni uppí líka, hann var vel á sig kominn og var alveg eiturhress út alla nóttina. Kvartaði útaf kvenmannsleysi og ég veit ekki hvað og hvað þannig að við Gummi óli fórum í það mál að leita að góðri konu handa Stánna, enda löngu kominn tími til! Ekki gekk það eftir, aðallega vegna þess hversu klukkan var orðin mikið og svo vissi maður að þetta myndi kannski ekki koma vel út fyrir hann eftirá þannig að ég skutlaði honum bara heim þegar klukkan fór að ganga 5.
En já varðandi þennan titil á bloginu mínu þá er mál með vexti þannig að í gærnótt (nóttina fyrir kosningar) dreymdi mig alveg ótrúlega skrítinn draum þar sem að ég var að drepa einhvern mann sem ég hef aaaldrei séð áður með skærum (eins skemmtilegt og það kann að vera). Ég man ekki eftir að hafa dreymt nokkuð þessu líkt þannig að ég fletti upp orðinu "morð" á síðunni
www.draumur.is sem ég hafði nýverið heyrt um í þættinum Súúper sem maður hlustar alltaf á á morgnanna í vinnunni.
En útkoman úr þessu hjá mér er svoldið kaldhæðin......
þetta stóð á síðunni......
Morð
"Það er fyrir vandræðum og leiðindum ef þig dreymir að þú myrðir einhvern sem þú þekkir. Ef það er ókunnugur aðili muntu hrósa sigri í deilu. Aðrir segja að fremji maður morð í draumi sé það merki um mikla streytu og álag. Morð og æsingur í kvikmyndastíl getur bent til órólegra lifnaðarhátta, þú ættir að hægja á þér."
Þið sjáið það sem ég lét undirstrika, þarna sést að ég eigi eftir að hrósa deilum ef manni dreymir þetta. Ef það er eitthvað að marka þetta þá gæti það verið að þetta tengist kosningunum sem voru í gær en þá hrósuðum við Sjálfstæðismenn miklum sigri í deilu um bæjarstjórnina þar sem stjórnin var m.a. felld!
Gaman að pæla í þessu 
En læt þetta gott heita af blogi að þessu sinni... Skellti svo inn nýrri könnun sem ég ætla að láta vera hérna fram að HM í tilefni þess að HM byrjar eftir aðeins örfáa daga!!! (þið afsakið það að aðeins var hægt að setja inn 10 svarmöguleika, og því setti ég helstu löndinn inn og notaðist einnig við nýjasta Syrkleikalista FIFA en tók þar lönd út eins og USA og Mexico því fólk er yfirleitt ekki á því að þær þjóðir vinni og setti því í staðinn inn England og Þýskaland því að fleiri halda með þeim! en annars ef þið eruð ósátt þá hakið þið bara í "annað land..."! 
Veriði blessuð!
Reynir Aðalsteinn Hannesson
23. maí 2006 klukkan 05:44
sælt veri fólkið, og takk fyrir síðast!
svolítið langt síðan að ég kom með síðustu færslu og margir sem segja "reynir ekki að standa sig í stykkinu" en ég hef góða ástæðu fyrir þessu blogleysi að undanförnu en það er þannig að ég er bara búinn að vera bundinn á æfingum og aftur æfingum síðustu viku og svo er vinnan alveg á fullu með því. semsagt nóg að gera!
Já það voru æfingar á fullu með Ínu og hljómsveit fyrir okkar fyrsta ball sem haldið var á Gamlabauk á Evrovisionkvöldið síðasta.
Get ekki sagt annað en að þetta hafi heppnast bara ótrúlega vel og mætingin var betri en maður átti von á. En málið er einmitt það að það var alveg pakkfullt á bauknum og hættu þeir í miðasölunni að hleypa inn rúmlega 01:00.... öss.... Stemningin var alveg gríðarlega góð og dösuðu allir eins og vitleysingar út allt ballið. Við byrjuðum kl.00:30 og þá voru nú ekki nema svona 10 inni á staðnum en svona korteri síðar var allt að fyllast. Maður bjóst líka ekki við að fólk væri komið alveg á slaginu 00:00. En já við semsagt spiluðum samanlagt í svona tæpa 3 tíma.. frá hálf 1 til hálf 4 með einni léttri pásu. Spilamenskan tókst bara yfir heildina vel, svolítið vesen í 2 lögum en þetta reddaðist allt enda vorum við aldrei búinn að renna programinu yfir í heild sinni, fyrsta ballið og því var nokkuð um stutt stopp á milli laga. En á næstu böllum verður þetta mun þéttara og betra. Þá verður búið að fínpússa og þétta programið. En annars bara já, alveg snilldar ball! Allir sem ég hef talað við segja bara að þetta hafi verið snilld og voru allir mjög ánægðir með lagavalið, og var niðurstaðan sú að þetta var ekki fræbært, alls ekki slæmt, þetta var bara svo ógeeeeðslega gaman!!!
...þó svo að tveir ákveðnir einstaklingar hafi öskrað "muse" eða "takið bubba" nokkuð þarna um kvöldið hehe... Mikil ölvun var á svæðinu eins og gefur að skilja en lítið sem ekkert var um kítingar og slagsmál. Þegar ballið var svo búið kom reyndar í ljós að einhver hafi verið svo sniðugur að rústa einu klósettinu þarna en jæja...
Síðast á programinu okkar var lagið "killing in the name of" og ætlaði þakið gjörsamlega af húsinu þegar lagið var tekið.. þannig að eins og gefur að skilja heimtuðu allir að við myndum taka fleiri lög með því að öskra af húsvískum sið "meira helvíti, meira pönk" og tókum við þá svona um 6 lög í viðbót eða svo.. Eftir það vildi fólk enn meira en þar sem að klukkan var orðin hálf 4 og við áttum bara að spila til 3 þá létum við þetta nægja í bili og fólk verður bara að bíða eftir næsta balli á Húsavík með okkur sem verður að öllum líkindum á Mærudögum! Eftir ballið fóru Ína og Rabbi að sofa en við djammararnir Jakob og Bjarni fórum í eitthvað lélegt eftirparty á flytjandasendlinum sem ég var búinn að vera með í rót fyrir ballið og svona... ótrúlega svalir! fór svo heim að sofa um 6 leytið... aaaalveg uppgefinn!!
Vaknaði svo um 4 leytið á sunnudag og beint í kaffi hjá ömmu og afa... úff hvað það var nice 
ég veit því miður ekki um neinar myndir frá ballinu en það var fullt af fólki með myndavélarnar á lofti þannig að ég býst við að það sé eitthvað einhverstaðar á netinu... látið mig vita ef þið finnið eitthvað!
þar til næst... blessuð... (nenni ekki að leita að villum)
Reynir Aðalsteinn Hannesson
14. maí 2006 klukkan 22:34
úff þetta er búinn að vera hrikalega erfiður sólarhringur!
Þannig er mál með vexti að til stóð á ég myndi keyra suður á mánudaginn (næsta) og ná í Jónu systur mína því að hún er að flytja í bæinn en er svo kasólétt að hún getur ekki keyrt alla þessa leið og svo þurfti að ná í fullt af dóti í leiðinni og gaman. Semsagt, ég ætlaði að gera þetta en þegar að það kom í ljós hversu þétt æfingar dagskráin okkar er fyrir þetta ball á Eurovisionkvöldið að þá sá ég að ég gæti ekki farið á mánudag þannig að ég bauðst til að koma og ná í hana á laugardag (sem var í gær). En Jóna sagði í fyrstu að það væri ekki hægt en svo kom það í ljós að það var geranlegt þannig að á föstudagskvöldið fékk ég að vita það að ég ætti að keyra á laugardag til Rvk og ná í hana og koma svo aftur (mátti ekkki við því að gista og vesen útaf æfingum). Þannig að ég vaknaði kl. 10.00 um morguninn í gær og brunaði á stað til Reykjavíkur. Þegar ég var svo að fara í gegnum Akureyri sá ég tvo puttalinga við shell sjoppuna að húkka far en ég keyrði bara framhjá. Hugsaði mig svo um og spáði í hversu einmanna ég gæti orðið að keyra alla leið 1 til rvk þannig að ég ákvað að taka næstu puttalinga uppí svona uppá grínið. Kannski myndi ég skutla þeim í hrútafjörð í mestalagi eða í varmahlíð... Ég þurfti ekki bíða lengi eftir að sjá fleiri á puttanum því að þegar ég var rétt að komast inn öxnadalinn sá ég tvo vera að húkka far. Ég hugsaði mig ekki tvisvar um og stoppaði fyrir þeim, spurði á minni glæstu ensku "where are you guy's going?" og þeir sögðu "reykjavík, where are you going?"... ég spáði svolítið í hvort það væri eitthvað varið í að hafa þá með alla þessa leið en sagði svo "reykjavík, hop in". Þetta voru fínustu náungar fyrst hélt ég að þetta væru einhverjir túristar á ferðalagi um ísland en þá voru þessir drengir, nördalegur þjóðverji í flíspeysu og frakki sem var svolítið arty búnir að vera að ransaka berg og jarðsögu íslands m.a. við Kröflu í Mývatnssveit ofl. Þeir eru víst að læra jarðfræði við háskóla íslands. Við spjölluðum svolítið um það en svo var spjallið á leiðinni aðallega á þá leið að tala um hvaða tónlist ég væri með í spilaranum hverju sinni og kom það í ljós að við vorum að fýla það sama þannig að þetta var bara allt í góðu. Þeir höfðu m.a. heyrt talað um okkur í Tony the Pony en einhvernveginn komst það í umræðuna. Hringdi í Jónu þegar ég var kominn á Blönduós og sagði henni hverjir væru með mér og hún fékk ákveðið móðursýkiskast og hélt að ég myndi koma til hennar í kvöld vælandi með rifið rassgat! HAHAHA... náði samt að fullvissa hana um að þetta væru fínustu gaurar..
Þegar maður kom til Rvk svona um 3-4 leytið henti ég þeim svo út hjá kringlunni. Þakka þeim fyrir samfyldina og sagði svo "okey, 5000 kr each for the ride" og þeir bara
en svo kom ég þeim í skilning um að ég væri að grínast, kvaddi þá og skrapp aðeins í Kringluna og fékk mér buxur og belti í Jack and Jones". Þegar ég var svo kominn í Hafnarfjörðin heim til Jónu hjálpaði ég nafna/mági mínum að taka til og pakka inn. ég var 2 dögum á undan þeirra plönum þannig að það var ekki alveg allt klárt og tók það alveg sinn tíma að pakka inn, taka til og henda hinu og þessu. Áætlaður brottfarartími (notabene lofaður brottfarartími sagði Jóna við mig) var kl. 19:00 en vegna þess að þett dróst eitthvað vorum við ekki lögð af stað heim fyr en um 22:00. Pöntuðum pizzu rétt áður en við fórum því að ég var að deeeeeyja.. hafði ekkert étið síðan á Blönduósi með puttalingunum. Skóflaði hálfri 12" dominos pizzu í mig fyrir utan einhverja blogg í Grafarvoginum þar sem Jóna og Reynir "eldri" geymdu bílinn sinn. mjög smekklegur á þeim tímapunkti. En já brunuðum heim og ég held að Jóna sé að verða eitthvað geðveik, það fylgir víst þessari óléttu en málið var að hún var alltaf svo hrikalega lífshrædd með mér í bílnum, en það lagaðist með tímanum. T.d. heimtaði hún að ég myndi vera með báðar hendurnar 24/7 bara á stýrinu, mátti liggur við ekki breyta um stöðu í 5 sek. en samt vildi hún ekki að ég væri með hendurnar "10 mín í tvö" á stýrinu því að þá yrði hún svo stressuð?!?! haha 
Komum svo hress kl. 03:00 um nóttina til Húsavíkur, já HRESS eða ég allavega, bar búinn með eina orku og 2 magic dósir þannig að ég var ferskur hehe.. En náði mér samt niður í tæka tíð til þess að ná að festa svefn eftir að hafa ekið um 1000 km þennan dag!!
svo í morgun var vaknað um 11 leytið, og farið á æfingu.... samt byrjaði hún ekki fyr en um 1 leytið... jakob var einhverstaðar uppí sveit, ína gleymdi æfingunni og Bjarni var bara lengi eins og vanalega..... ágætist æfing og það er svona rólega að komast mynd á prógramið okkar! svo vorum við að fara yfir bókanir á okkur í sumar og það verður bara að öllum líkindum þétt dagsskrá í sumar, allavega í Júlí! heilmikið djamm!!
Svo er bara aftur æfing í kvöld kl. hálf 10. Þannig að núna ætla ég að gera eitthvað gáfulegt þangað til. Eyrún einhverstaðar í Sveit með famelíunni og í engu símasambandi þannig að maður veit reyndar ekkert hvað skal gera. það reddast!
Sjáumst...
Reynir Aðalsteinn Hannesson
11. maí 2006 klukkan 17:42
"til hamingju Reynir"
- Takk...
"hvernig er svo að vera kominn í sumarfrí?"
- bara geðveikt!! ahhh... gæti ekki liðið betur..
"Búinn að ná öllum prófunum og svona?"
- Jájájá, reyndar ekki búinn að fá útúr íslensku en ég reikna ekki með að falla í því 
"hvernig gekk þér svo? hvaða einkunir varstu með?"
- vel bara.... ömmm fékk 8 í jar 213, 7 í jar 203, 7 í stæ 403, 8 í stæ 413, 8 í efn 103 og svo 9 í eðl 103 og á svo eftir að fá út úr ísl 403..
"noohh, til hamingju"!
- já þakka þér fyrir.
"hvað tekur svo við?"
- bara endalausar æfingar fyrir evrovision ballið á Gamlabauk og svo vinna og vinna!
Já þar hafið þið það, skemmtilegt viðtal við sjálfan mig....!
En annars þá er allt gott að frétta af mér eins og kemur fram í viðtalinu, maður kominn í sumarfrí frá skólanum og allt í góðum gír. Er bara nokkuð sáttur með árangur minn þessa önnina, besta önnin mín til þessa verð ég að segja 
Núna taka við endalaust græ og æfingar fyrir komandi evrovision ball sem verður á Gamla bauk laugardaginn 20. maí. ætli þetta byrji ekki um 12.00 og kosti 1000 kall inn eins og tíðkast á öllum böllum. Þar verðum við í húsbandi Ínu Valgerðar með heljarinnar húllumhæ, þvílíkt ball og stuð!! ekki láta það framhjá ykkur fara.. En núna standa semsagt yfir samningaviðræður við hina og þessa aðila um að styrkja okkur í þessu öllu því að í sumar ætlum við að leggjast í ball túr væntanlega með rútu, rótara og öllu tilheyrandi!
. Græja plaggöt, redda sponsi, plögga gigg og ég veit ekki hvað og hvað...
Byrja svo að öllum líkindum að vinna ekki fyr en á miðvikudag í næstu viku.. þangað til verða bara æfingar, æfingar, æfingar á ball programinu sem verður skothelt skal ég segja ykkur!!! æfingar frá 8:00 um morguninn til 16.00 um daginn og svo aftur kl. 20.00 til 00:00... neee kannski ekki aaaaalveg svona mikið
Segjum það!!! ég er farinn einmitt núna á........ æfingu, kemur á óvart?!?!?!
Reynir Aðalsteinn Hannesson
08. maí 2006 klukkan 04:39
úff maður getur valla beiðið eftir að komast í sumarfríið!! 3 próf eftir og þá er komið "frí" (vinnan tekur við). Vá hvað það verður þægilegt að þurfa ekki að hafa hugann við skólann og að stressa sig á að gera einhver verkefni eða ritgerðir eða rugl í 3 mánuði! Það verður ljúft. En annars þá er frí hjá mér á morgun, ekkert próf þá og svo er 1 á þriðjudag og 2 á miðvikudag! og svo skemmtilega vill til að þetta eru þyngstu prófin (held ég), ísl, stæ og efn... en ætli maður nái þessu ekki!
Síðustu dagar hafa mest farið í prófalærdum, það var reyndar svo rosalega gott veður í gær og í dag að maður gat ekki haldið einbeitingu.. í gær fór ég t.d. í ísbíltúr og svona með Eyrúnu og fór út í fótbolta... tók reyndar væna rispu í íslensku áður en ég skellti mér út í sólina. Shit hvað það var heitt, held það hafi verið um 18 stig í sól þegar best var, og þegar að ég fór í bílinn minn svona um 4 leytið þá var hann búinn að standa í sólinni allan daginn og þegar ég fór inn í hann táraðist ég úr hita haha, það hefur aldrei gerst áður held ég
. Var eitthvað á rúntinum með Ingvari um kvöldið og endaði svo heima hjá Eyrúnu þar sem horft var á "just friends". fínasta mynd, hægt að hlæja af ýmsu þar. Í dag var svo ekki eins gott veður en samt mjög gott veður miðað við byrjun maí, alveg 15 stiga hiti fyrst en svo fór sólin um 4 leytið... þá var ég ekkert búinn að nenna að læra, var að horfa á lokaumferðina í enska boltanum.. horfði þar á leik minna manna í Man utd bursta Charlton 4-0, vildi nú samt sjá Solskjær setja hann í restina en svona er þetta. Svo kom Eyrún í heimsókn þannig að ég kom mér ekki í það að læra í efn fyr en núna í kvöld, það var nú svosem alltí lagi.. nægur tími.. á morgun er maður svo að spá í að taka allan daginn í stæ.. þarf á því að halda að rifja þetta upp, stundum skilur maður ekkert hvað knútur er að gera og það á vel við þennan áfanga!
Skemmtilegt að segja frá því að lagið okkar í Tony "army of the sun" er komið í 3 sæti á x-listanum!
og fólk... kjósið svo í könnuninni!!
Jæja, læta þetta duga í kvöld... ætlað skella mér smá í Fm og fara svo að lúlla
Reynir Aðalsteinn Hannesson