Staðreyndir

1. Björk er betri en Metallica!
2. Háskólarokk er ekki ásættanleg tónlist
3. Sumir fara oftar í hambó en aðrir!
4. C. Ronaldo burt úr Man Utd
5. Douglas DC - 3 er málið
6. Halldór er með náttúrulega peysu
7. Roger, Roger....
8. Gunni Bald er Kóngurinn!
9. Erling er í bandi
10. Coca Cola er betra en Pepsi
11. Enginn getur fyllt skarð Roy Keane

... Uppfært 3/7/2006 ...

Auglýsing

Könnun

Hverjir vinna HM?

Gagnasafn

Leikur dagsins

Leit

aaaa... 3 dagar í frelsi!

08. maí 2006 klukkan 04:39

úff maður getur valla beiðið eftir að komast í sumarfríið!! 3 próf eftir og þá er komið "frí" (vinnan tekur við). Vá hvað það verður þægilegt að þurfa ekki að hafa hugann við skólann og að stressa sig á að gera einhver verkefni eða ritgerðir eða rugl í 3 mánuði! Það verður ljúft. En annars þá er frí hjá mér á morgun, ekkert próf þá og svo er 1 á þriðjudag og 2 á miðvikudag! og svo skemmtilega vill til að þetta eru þyngstu prófin (held ég), ísl, stæ og efn... en ætli maður nái þessu ekki!
Síðustu dagar hafa mest farið í prófalærdum, það var reyndar svo rosalega gott veður í gær og í dag að maður gat ekki haldið einbeitingu.. í gær fór ég t.d. í ísbíltúr og svona með Eyrúnu og fór út í fótbolta... tók reyndar væna rispu í íslensku áður en ég skellti mér út í sólina. Shit hvað það var heitt, held það hafi verið um 18 stig í sól þegar best var, og þegar að ég fór í bílinn minn svona um 4 leytið þá var hann búinn að standa í sólinni allan daginn og þegar ég fór inn í hann táraðist ég úr hita haha, það hefur aldrei gerst áður held ég Ullandi. Var eitthvað á rúntinum með Ingvari um kvöldið og endaði svo heima hjá Eyrúnu þar sem horft var á "just friends". fínasta mynd, hægt að hlæja af ýmsu þar. Í dag var svo ekki eins gott veður en samt mjög gott veður miðað við byrjun maí, alveg 15 stiga hiti fyrst en svo fór sólin um 4 leytið... þá var ég ekkert búinn að nenna að læra, var að horfa á lokaumferðina í enska boltanum.. horfði þar á leik minna manna í Man utd bursta Charlton 4-0, vildi nú samt sjá Solskjær setja hann í restina en svona er þetta. Svo kom Eyrún í heimsókn þannig að ég kom mér ekki í það að læra í efn fyr en núna í kvöld, það var nú svosem alltí lagi.. nægur tími..  á morgun er maður svo að spá í að taka allan daginn í stæ.. þarf á því að halda að rifja þetta upp, stundum skilur maður ekkert hvað knútur er að gera og það á vel við þennan áfanga!
Skemmtilegt að segja frá því að lagið okkar í Tony  "army of the sun" er komið í 3 sæti á x-listanum!
og fólk... kjósið svo í könnuninni!!

Jæja, læta þetta duga í kvöld... ætlað skella mér smá í Fm og fara svo að lúlla

Reynir Aðalsteinn Hannesson
umbrella í linka
08. maí 2006 klukkan 17:27
Ingvar Björn
 
er aukasýning hjá 10.bekk eða? haha vúúúú búrumm tiss!!
10. maí 2006 klukkan 17:58

Skrifa athugasemd