SUMARFRÍ!! og evrovision ball
"til hamingju Reynir"
- Takk...
"hvernig er svo að vera kominn í sumarfrí?"
- bara geðveikt!! ahhh... gæti ekki liðið betur..
"Búinn að ná öllum prófunum og svona?"
- Jájájá, reyndar ekki búinn að fá útúr íslensku en ég reikna ekki með að falla í því ![]()
"hvernig gekk þér svo? hvaða einkunir varstu með?"
- vel bara.... ömmm fékk 8 í jar 213, 7 í jar 203, 7 í stæ 403, 8 í stæ 413, 8 í efn 103 og svo 9 í eðl 103 og á svo eftir að fá út úr ísl 403..
"noohh, til hamingju"!
- já þakka þér fyrir.
"hvað tekur svo við?"
- bara endalausar æfingar fyrir evrovision ballið á Gamlabauk og svo vinna og vinna!
Já þar hafið þið það, skemmtilegt viðtal við sjálfan mig....!
En annars þá er allt gott að frétta af mér eins og kemur fram í viðtalinu, maður kominn í sumarfrí frá skólanum og allt í góðum gír. Er bara nokkuð sáttur með árangur minn þessa önnina, besta önnin mín til þessa verð ég að segja ![]()
Núna taka við endalaust græ og æfingar fyrir komandi evrovision ball sem verður á Gamla bauk laugardaginn 20. maí. ætli þetta byrji ekki um 12.00 og kosti 1000 kall inn eins og tíðkast á öllum böllum. Þar verðum við í húsbandi Ínu Valgerðar með heljarinnar húllumhæ, þvílíkt ball og stuð!! ekki láta það framhjá ykkur fara.. En núna standa semsagt yfir samningaviðræður við hina og þessa aðila um að styrkja okkur í þessu öllu því að í sumar ætlum við að leggjast í ball túr væntanlega með rútu, rótara og öllu tilheyrandi!
. Græja plaggöt, redda sponsi, plögga gigg og ég veit ekki hvað og hvað...
Byrja svo að öllum líkindum að vinna ekki fyr en á miðvikudag í næstu viku.. þangað til verða bara æfingar, æfingar, æfingar á ball programinu sem verður skothelt skal ég segja ykkur!!! æfingar frá 8:00 um morguninn til 16.00 um daginn og svo aftur kl. 20.00 til 00:00... neee kannski ekki aaaaalveg svona mikið
Segjum það!!! ég er farinn einmitt núna á........ æfingu, kemur á óvart?!?!?!
