puttalingar á 1000 km ferðalagi!
úff þetta er búinn að vera hrikalega erfiður sólarhringur!
Þannig er mál með vexti að til stóð á ég myndi keyra suður á mánudaginn (næsta) og ná í Jónu systur mína því að hún er að flytja í bæinn en er svo kasólétt að hún getur ekki keyrt alla þessa leið og svo þurfti að ná í fullt af dóti í leiðinni og gaman. Semsagt, ég ætlaði að gera þetta en þegar að það kom í ljós hversu þétt æfingar dagskráin okkar er fyrir þetta ball á Eurovisionkvöldið að þá sá ég að ég gæti ekki farið á mánudag þannig að ég bauðst til að koma og ná í hana á laugardag (sem var í gær). En Jóna sagði í fyrstu að það væri ekki hægt en svo kom það í ljós að það var geranlegt þannig að á föstudagskvöldið fékk ég að vita það að ég ætti að keyra á laugardag til Rvk og ná í hana og koma svo aftur (mátti ekkki við því að gista og vesen útaf æfingum). Þannig að ég vaknaði kl. 10.00 um morguninn í gær og brunaði á stað til Reykjavíkur. Þegar ég var svo að fara í gegnum Akureyri sá ég tvo puttalinga við shell sjoppuna að húkka far en ég keyrði bara framhjá. Hugsaði mig svo um og spáði í hversu einmanna ég gæti orðið að keyra alla leið 1 til rvk þannig að ég ákvað að taka næstu puttalinga uppí svona uppá grínið. Kannski myndi ég skutla þeim í hrútafjörð í mestalagi eða í varmahlíð... Ég þurfti ekki bíða lengi eftir að sjá fleiri á puttanum því að þegar ég var rétt að komast inn öxnadalinn sá ég tvo vera að húkka far. Ég hugsaði mig ekki tvisvar um og stoppaði fyrir þeim, spurði á minni glæstu ensku "where are you guy's going?" og þeir sögðu "reykjavík, where are you going?"... ég spáði svolítið í hvort það væri eitthvað varið í að hafa þá með alla þessa leið en sagði svo "reykjavík, hop in". Þetta voru fínustu náungar fyrst hélt ég að þetta væru einhverjir túristar á ferðalagi um ísland en þá voru þessir drengir, nördalegur þjóðverji í flíspeysu og frakki sem var svolítið arty búnir að vera að ransaka berg og jarðsögu íslands m.a. við Kröflu í Mývatnssveit ofl. Þeir eru víst að læra jarðfræði við háskóla íslands. Við spjölluðum svolítið um það en svo var spjallið á leiðinni aðallega á þá leið að tala um hvaða tónlist ég væri með í spilaranum hverju sinni og kom það í ljós að við vorum að fýla það sama þannig að þetta var bara allt í góðu. Þeir höfðu m.a. heyrt talað um okkur í Tony the Pony en einhvernveginn komst það í umræðuna. Hringdi í Jónu þegar ég var kominn á Blönduós og sagði henni hverjir væru með mér og hún fékk ákveðið móðursýkiskast og hélt að ég myndi koma til hennar í kvöld vælandi með rifið rassgat! HAHAHA... náði samt að fullvissa hana um að þetta væru fínustu gaurar..
Þegar maður kom til Rvk svona um 3-4 leytið henti ég þeim svo út hjá kringlunni. Þakka þeim fyrir samfyldina og sagði svo "okey, 5000 kr each for the ride" og þeir bara
en svo kom ég þeim í skilning um að ég væri að grínast, kvaddi þá og skrapp aðeins í Kringluna og fékk mér buxur og belti í Jack and Jones". Þegar ég var svo kominn í Hafnarfjörðin heim til Jónu hjálpaði ég nafna/mági mínum að taka til og pakka inn. ég var 2 dögum á undan þeirra plönum þannig að það var ekki alveg allt klárt og tók það alveg sinn tíma að pakka inn, taka til og henda hinu og þessu. Áætlaður brottfarartími (notabene lofaður brottfarartími sagði Jóna við mig) var kl. 19:00 en vegna þess að þett dróst eitthvað vorum við ekki lögð af stað heim fyr en um 22:00. Pöntuðum pizzu rétt áður en við fórum því að ég var að deeeeeyja.. hafði ekkert étið síðan á Blönduósi með puttalingunum. Skóflaði hálfri 12" dominos pizzu í mig fyrir utan einhverja blogg í Grafarvoginum þar sem Jóna og Reynir "eldri" geymdu bílinn sinn. mjög smekklegur á þeim tímapunkti. En já brunuðum heim og ég held að Jóna sé að verða eitthvað geðveik, það fylgir víst þessari óléttu en málið var að hún var alltaf svo hrikalega lífshrædd með mér í bílnum, en það lagaðist með tímanum. T.d. heimtaði hún að ég myndi vera með báðar hendurnar 24/7 bara á stýrinu, mátti liggur við ekki breyta um stöðu í 5 sek. en samt vildi hún ekki að ég væri með hendurnar "10 mín í tvö" á stýrinu því að þá yrði hún svo stressuð?!?! haha ![]()
Komum svo hress kl. 03:00 um nóttina til Húsavíkur, já HRESS eða ég allavega, bar búinn með eina orku og 2 magic dósir þannig að ég var ferskur hehe.. En náði mér samt niður í tæka tíð til þess að ná að festa svefn eftir að hafa ekið um 1000 km þennan dag!!
svo í morgun var vaknað um 11 leytið, og farið á æfingu.... samt byrjaði hún ekki fyr en um 1 leytið... jakob var einhverstaðar uppí sveit, ína gleymdi æfingunni og Bjarni var bara lengi eins og vanalega..... ágætist æfing og það er svona rólega að komast mynd á prógramið okkar! svo vorum við að fara yfir bókanir á okkur í sumar og það verður bara að öllum líkindum þétt dagsskrá í sumar, allavega í Júlí! heilmikið djamm!!
Svo er bara aftur æfing í kvöld kl. hálf 10. Þannig að núna ætla ég að gera eitthvað gáfulegt þangað til. Eyrún einhverstaðar í Sveit með famelíunni og í engu símasambandi þannig að maður veit reyndar ekkert hvað skal gera. það reddast!
Sjáumst...
