Staðreyndir

1. Björk er betri en Metallica!
2. Háskólarokk er ekki ásættanleg tónlist
3. Sumir fara oftar í hambó en aðrir!
4. C. Ronaldo burt úr Man Utd
5. Douglas DC - 3 er málið
6. Halldór er með náttúrulega peysu
7. Roger, Roger....
8. Gunni Bald er Kóngurinn!
9. Erling er í bandi
10. Coca Cola er betra en Pepsi
11. Enginn getur fyllt skarð Roy Keane

... Uppfært 3/7/2006 ...

Auglýsing

Könnun

Hverjir vinna HM?

Gagnasafn

Leikur dagsins

Leit

Troðfullt á balli!

23. maí 2006 klukkan 05:44

sælt veri fólkið, og takk fyrir síðast!
svolítið langt síðan að ég kom með síðustu færslu og margir sem segja "reynir ekki að standa sig í stykkinu" en ég hef góða ástæðu fyrir þessu blogleysi að undanförnu en það er þannig að ég er bara búinn að vera bundinn á æfingum og aftur æfingum síðustu viku og svo er vinnan alveg á fullu með því. semsagt nóg að gera!
Já það voru æfingar á fullu með Ínu og hljómsveit fyrir okkar fyrsta ball sem haldið var á Gamlabauk á Evrovisionkvöldið síðasta.
Get ekki sagt annað en að þetta hafi heppnast bara ótrúlega vel og mætingin var betri en maður átti von á. En málið er einmitt það að það var alveg pakkfullt á bauknum og hættu þeir í miðasölunni að hleypa inn rúmlega 01:00.... öss.... Stemningin var alveg gríðarlega góð og dösuðu allir eins og vitleysingar út allt ballið. Við byrjuðum kl.00:30 og þá voru nú ekki nema svona 10 inni á staðnum en svona korteri síðar var allt að fyllast. Maður bjóst líka ekki við að fólk væri komið alveg á slaginu 00:00. En já við semsagt spiluðum samanlagt í svona tæpa 3 tíma.. frá hálf 1 til hálf 4 með einni léttri pásu. Spilamenskan tókst bara yfir heildina vel, svolítið vesen í 2 lögum en þetta reddaðist allt enda vorum við aldrei búinn að renna programinu yfir í heild sinni, fyrsta ballið og því var nokkuð um stutt stopp á milli laga. En á næstu böllum verður þetta mun þéttara og betra. Þá verður búið að fínpússa og þétta programið. En annars bara já, alveg snilldar ball! Allir sem ég hef talað við segja bara að þetta hafi verið snilld og voru allir mjög ánægðir með lagavalið, og var niðurstaðan sú að þetta var ekki fræbært, alls ekki slæmt, þetta var bara svo ógeeeeðslega gaman!!!
...þó svo að tveir ákveðnir einstaklingar hafi öskrað "muse" eða "takið bubba" nokkuð þarna um kvöldið hehe... Mikil ölvun var á svæðinu eins og gefur að skilja en lítið sem ekkert var um kítingar og slagsmál. Þegar ballið var svo búið kom reyndar í ljós að einhver hafi verið svo sniðugur að rústa einu klósettinu þarna en jæja...
Síðast á programinu okkar var lagið "killing in the name of" og ætlaði þakið gjörsamlega af húsinu þegar lagið var tekið.. þannig að eins og gefur að skilja heimtuðu allir að við myndum taka fleiri lög með því að öskra af húsvískum sið "meira helvíti, meira pönk" og tókum við þá svona um 6 lög í viðbót eða svo.. Eftir það vildi fólk enn meira en þar sem að klukkan var orðin hálf 4 og við áttum bara að spila til 3 þá létum við þetta nægja í bili og fólk verður bara að bíða eftir næsta balli á Húsavík með okkur sem verður að öllum líkindum á Mærudögum! Eftir ballið fóru Ína og Rabbi að sofa en við djammararnir Jakob og Bjarni fórum í eitthvað lélegt eftirparty á flytjandasendlinum sem ég var búinn að vera með í rót fyrir ballið og svona... ótrúlega svalir! fór svo heim að sofa um 6 leytið... aaaalveg uppgefinn!!
Vaknaði svo um 4 leytið á sunnudag og beint í kaffi hjá ömmu og afa... úff hvað það var nice Ullandi
ég veit því miður ekki um neinar myndir frá ballinu en það var fullt af fólki með myndavélarnar á lofti þannig að ég býst við að það sé eitthvað einhverstaðar á netinu... látið mig vita ef þið finnið eitthvað!

þar til næst... blessuð... (nenni ekki að leita að villum)

Reynir Aðalsteinn Hannesson

Skrifa athugasemd