Staðreyndir

1. Björk er betri en Metallica!
2. Háskólarokk er ekki ásættanleg tónlist
3. Sumir fara oftar í hambó en aðrir!
4. C. Ronaldo burt úr Man Utd
5. Douglas DC - 3 er málið
6. Halldór er með náttúrulega peysu
7. Roger, Roger....
8. Gunni Bald er Kóngurinn!
9. Erling er í bandi
10. Coca Cola er betra en Pepsi
11. Enginn getur fyllt skarð Roy Keane

... Uppfært 3/7/2006 ...

Auglýsing

Könnun

Hverjir vinna HM?

Gagnasafn

Leikur dagsins

Leit

skrýtinn draumur

29. maí 2006 klukkan 01:44
Góða kvöldið gott fólk, langt síðan síðast. Já ég hef ekki verið að standa mig í þessu blogi, en þetta er allt í góðu hef nóg annað að gera þannig að ég ætla núna í sumar að taka þessu svoldið rólega en koma mjög reglulega með færslur hér!
Það sem er helst í fréttum þessa dagana er það að í gær voru sveitastjórnarkosningar þar sem D listi sjálfstæðisflokks og óháðra fór með sigur hér á Húsavík, eða í "norðurþingi" eins og þetta sameinaða sveitarfélag heitir núna (eða það vann allavega kosninguna í vali á nafni), ég kaus meira að segja þetta nafn (Y). En já varðandi úrslitin í sveitastjórnarkosningunum, þá fékk sjálfstæðisflokkurinn (D) flest atkvæði og 3 fulltrúa, Framsóknarflokkurinn (B) fékk næst flest og 3 fulltrúa, Samfylking (S) fékk 2 fulltrúa og Vinstri grænir (V) fengu 1 fulltrúa! Gaman að segja frá því að aðeins 14 atkvæði skildu að D og B og er þetta í fyrsta sinn sem að Sjálfstæðisflokkurinn vinnur svona sigur í bæjarstjórnarkosningum! Ekkert nema gott um það að segja, en ég kaus einmitt D!! Eftir úrslitin fór ég og frambjóðandinn (Erling) í sigurrúnt um bæinn með Sjálfstæðisflokksfána sem við flögguðum í gríð og erg endaði svo með því að ég festi fánnann aftan í bílinn. Eftir þetta var svo bara rúntað og rúntað, ótrúlega langt síðan ég hef rúntað svona mikið á einu kvöldi! ussss! Tók Eyrúnu uppí og í framhaldi af því kom Stánni uppí líka, hann var vel á sig kominn og var alveg eiturhress út alla nóttina. Kvartaði útaf kvenmannsleysi og ég veit ekki hvað og hvað þannig að við Gummi óli fórum í það mál að leita að góðri konu handa Stánna, enda löngu kominn tími til! Ekki gekk það eftir, aðallega vegna þess hversu klukkan var orðin mikið og svo vissi maður að þetta myndi kannski ekki koma vel út fyrir hann eftirá þannig að ég skutlaði honum bara heim þegar klukkan fór að ganga 5.

En já varðandi þennan titil á bloginu mínu þá er mál með vexti þannig að í gærnótt (nóttina fyrir kosningar) dreymdi mig alveg ótrúlega skrítinn draum þar sem að ég var að drepa einhvern mann sem ég hef aaaldrei séð áður með skærum (eins skemmtilegt og það kann að vera). Ég man ekki eftir að hafa dreymt nokkuð þessu líkt þannig að ég fletti upp orðinu "morð" á síðunni www.draumur.is sem ég hafði nýverið heyrt um í þættinum Súúper sem maður hlustar alltaf á á morgnanna í vinnunni.
En útkoman úr þessu hjá mér er svoldið kaldhæðin......
þetta stóð á síðunni......

Morð

"Það er fyrir vandræðum og leiðindum ef þig dreymir að þú myrðir einhvern sem þú þekkir. Ef það er ókunnugur aðili muntu hrósa sigri í deilu. Aðrir segja að fremji maður morð í draumi sé það merki um mikla streytu og álag. Morð og æsingur í kvikmyndastíl getur bent til órólegra lifnaðarhátta, þú ættir að hægja á þér."

Þið sjáið það sem ég lét undirstrika, þarna sést að ég eigi eftir að hrósa deilum ef manni dreymir þetta. Ef það er eitthvað að marka þetta þá gæti það verið að þetta tengist kosningunum sem voru í gær en þá hrósuðum við Sjálfstæðismenn miklum sigri í deilu um bæjarstjórnina þar sem stjórnin var m.a. felld!
Gaman að pæla í þessu Ullandi

En læt þetta gott heita af blogi að þessu sinni... Skellti svo inn nýrri könnun sem ég ætla að láta vera hérna fram að HM í tilefni þess að HM byrjar eftir aðeins örfáa daga!!! (þið afsakið það að aðeins var hægt að setja inn 10 svarmöguleika, og því setti ég helstu löndinn inn og notaðist einnig við nýjasta Syrkleikalista FIFA en tók þar lönd út eins og USA og Mexico því fólk er yfirleitt ekki á því að þær þjóðir vinni og setti því í staðinn inn England og Þýskaland því að fleiri halda með þeim! en annars ef þið eruð ósátt þá hakið þið bara í "annað land..."! Hlæjandi
Veriði blessuð!

Reynir Aðalsteinn Hannesson
Kristján
 
haha... wotta rugl
30. maí 2006 klukkan 03:25
Bara að kvitta fyrir mig...þú þarna...Murri pólítíkus ! ;o)
Síjú í sömmer !
01. júní 2006 klukkan 01:32
Hrannzi Producer
 
ég var að kúka heima hjá rúnari júl... :D
01. júní 2006 klukkan 23:29
Halldór Fannar
 
gmg
02. júní 2006 klukkan 01:00

Skrifa athugasemd