Flugið að byrja!
05. júní 2006 klukkan 21:56
Jæja, ætli það sé ekki kominn tími á eitt blog eða svo...Maður hefur eiginlega mest legið í leti þessa helgi, enda löng (3 daga) helgi og alveg tilvalið að slappa af, hef ekki tekið því svona rólega yfir helgi síðan ég veit ekki hvenar, um jólin eða eitthvað.... maður er alltaf eitthvað að þvælast. En alveg síðustu viku og þessa helgi hefur maður verið bara að gera mest lítið þegar maður er búinn að vinna... Eyrún var í einhverju ferðalagi með bekknum og svo fór hún strax til Grundarfjarðar daginn eftir að hún kom heim úr bekkjarferðinni. uss uss uss, ekki fallegt en á meðan hefur maðru bara verið að gera eitthvað til þess að eyða tímanum, hef gefið mér tíma í að skreppa nokkrum sinnum í fótbolta, rúnta og svo skelltum við Rabbi okkur í golf um daginn.. Tók hringinn á 58 höggum, það er nú ekki góður árangur en ég er alveg sáttur með hann miðað við að ég hef ekki farið í golf síðustu 2-3 árin. En jæja... Í gær hringdi ég svo inná akureyri og pantaði mér tíma í Kynnisflug hjá flugskóla akureyrar, gaman að því! Maður þarf að farað byrja á þessu helvíti
Jæjajæja, var rétt í þessu að koma af vellinum þar sem að Völsungar mættu Njarðvík í 2 deildinni. Völsungar komust 1-0 yfir á 4 mín með marki frá Boban, Einar fékk svo sitt annað gula spjald og þar með rautt þegar að fyrri hálfleikur var að klárast þannig að Völsungar voru manni færri allann seinni hálfleik, samt náðum við að halda markinu hreinu þar til á 90. mín þegar að Gunni siggi náði að verja boltann með hendi inní teig og víta spyrna dæmd!!!!! Bjössi náði reyndar að verja en enginn gat drullast til að fylgja eftir boltanum og hreinsa þannig að einhver úr Njarðvík var aleinn og náði að setja hann í markið og niðustaðan 1-1 jafntefli!!!! alls ekki sáttur með þetta!!! dómarinn átti líka alveg skelfilegann leik og var alls ekki með völd á þessum leik, sannarlega ekki starfi sínu vaxinn! en það þýðir lítið að væla útaf þessu núna.....
Í Kvöld erum við svo í hljómsveit ínu að fara að spila örfá lög í bíóinu að ég held kl. 20.00 á einhverjum styrktartónleikum sem bera heitið "líf án áfengis" en þetta er eitthvað dæmi sem Elli braga stendur fyrir, þar mun fjöldinn allur af tónlistarfólki koma fram og sýna sig, m.a. við.
En pápi var eitthvað að væla í mér um að fara og negla nokkrar stæður af brettum niðrí vinnu, svona fyrst ég ætla að taka mér frí í vinnunni á morgun til þess að fara í flugtímann og svo vonandi í læknisskoðun ef ég fæ tíma, en maður þarf nú að vera með fyrstaflokks læknisvottorð ef maður ætlar útí þessa atvinnuflugmennsku.
Veriði sæl
Reynir Aðalsteinn Hannesson
