Stađreyndir

1. Björk er betri en Metallica!
2. Háskólarokk er ekki ásćttanleg tónlist
3. Sumir fara oftar í hambó en ađrir!
4. C. Ronaldo burt úr Man Utd
5. Douglas DC - 3 er máliđ
6. Halldór er međ náttúrulega peysu
7. Roger, Roger....
8. Gunni Bald er Kóngurinn!
9. Erling er í bandi
10. Coca Cola er betra en Pepsi
11. Enginn getur fyllt skarđ Roy Keane

... Uppfćrt 3/7/2006 ...

Auglýsing

Könnun

Hverjir vinna HM?

Gagnasafn

Leikur dagsins

Leit

666 og Ţvagprufa

07. júní 2006 klukkan 04:58
Jæjajæjajæja, í dag er merkisdagur.... dagsetningin er 06.06.06 eða dagur djöfullsins, Bubbi á fimmtugsafmæli og ég fór í minn fyrsta flugtíma í dag. Söss!! Ullandi
Já tók mér frí í dag til þess að getað farið inná ak í kynnisflug hjá flugskóla akureyrar. Jónas tók hress á móti mér, en hann er einmitt flugkennari þar. Skrýtið að spá í því að hann sé fættur '84 eða bara 4 árum eldri en ég! En svona getur þetta verið skemmtilegt. Hann sýndi mér þessar helstu grunnreglur sem maður þarf að fara yfir áður en flug hefst, gerðum flugskýrslu og skoðuðum vélina gaumgæfulega, kanna bensín, vængi og þess háttar (nenni nú ekki að lýsa því nánar). Svo hoppuðum við bara uppí vél, hituðum vélina og báðum um brottfararleyfi og brunuðum svo útá braut og í loftið. Ótrúlega skrýtið að fara í loftið á svona vél miðað við venjulega Fokkera og Boeing þoturnar, þessi rella (Piper tomahawk) er svo létt að um leið og hjólin lyftust frá jörðu fór hún að vagga með vindinum. Vindurinn var reyndar svoldið leiðinlegur þennan dag, hann var ekki alveg búinn að ákveða vindáttina þannig að vélin var kannski heldur óróleg miðað við venjulega (sagði Jónas) en þetta reddaðist nú alveg. Það var Sunnanátt þannig að við fórum í loftið í suðurátt, inn fjörðinn (uppí vind) og tókum svo góða vinstri beygju, tókum stefnuna svo á akureyri og þá leyfði hann mér að taka í stýrið! Oooog þar með var flugferillinn hafinn! hehe Saklaus... Ég var nú ekkert að leyfa mér að gera einhverjar kúnstir, tókum því bara rólega í 1000 fetum og maður flaug fram og til baka í eyjafirðinum. Þetta stóð í svona hálftíma þar til að við tókum stefnuna á akureyrarflugvöll að nýju.
Eftir flugferðina ætlaði ég svo að panta tíma í læknisskoðun hjá fluglækni en neinei það er víst alveg heljarinnar vesen. En jæja eftir að ritari læknissins hafði útskýrt þetta eitthvað fyrir mér þá fékk ég tíma á mánudagsmorguninn næsta fyrir blóðprufu, hjartalínurit, lungnaröntgen, öndunarpróf ofl. og svo þurfti ég sjálfur að panta tíma hjá augnlækni og svo aftur hjá Eyrnalækni.. Sem betur fer fékk ég tíma hjá þeim líka á mánudag þannig að Mánudagurinn næsti fer bara í það að rúnta á milli lækna og fara í skoðun. Aldeilis gaman! og til að toppa þetta allt, þarf ég að koma á fastandi maga í blóðprufuna og með þvagprufu með mér. HAHA... Þannig að ég þarf að rúnta með þvagprufu úr mér frá Húsavík til akureyrar um morguninn... þvílík snilld Ullandi

En núna fer líka að styttast óþfluga í að ég eignist lítinn frænda og verði þar af leiðandi móður bróðir! Jújú, Jóna stóra systir er við það að gjóta sínu fyrsta barni! Spáð var að hún myndi fæða í fyrradag en neinei það er ekkert að gerast, fyndið ef hún hefði fætt í dag, þá væri flott kennitala! En það væri kannski ekkert of töff að vera með þessa kennitölu, kennitölu djöfullsins hehe...
Já og meðan ég man, þá hef ég ekki glóru um hvort þetta verði strákur eða stelpa, en ég spái að þetta verði lítill frændi!
Jæja, nóg í bili....
Reynir Ađalsteinn Hannesson
Siggi
 
gaman að þessu :) til hamingju með fyrsta flugtímann, ég vænti þess að sjá þig í þotuliðinu innan fárra ára=)
07. júní 2006 klukkan 17:01
Ú beibí, til lukku....þú kannski skutlast eftir mér um miðjan júlí ;-)
Hejsan hopsan.
15. júní 2006 klukkan 13:34

Skrifa athugasemd