Staðreyndir

1. Björk er betri en Metallica!
2. Háskólarokk er ekki ásættanleg tónlist
3. Sumir fara oftar í hambó en aðrir!
4. C. Ronaldo burt úr Man Utd
5. Douglas DC - 3 er málið
6. Halldór er með náttúrulega peysu
7. Roger, Roger....
8. Gunni Bald er Kóngurinn!
9. Erling er í bandi
10. Coca Cola er betra en Pepsi
11. Enginn getur fyllt skarð Roy Keane

... Uppfært 3/7/2006 ...

Auglýsing

Könnun

Hverjir vinna HM?

Gagnasafn

Leikur dagsins

Leit

nýklippt þvagprufa

17. júní 2006 klukkan 00:33

nýklipptur og fínnSælt veri fólkið... langt síðan síðast, jújú... en svona er þetta.. mikið að gera hjá mér þessa dagana, vinna, vinna, vinna, æfingar, æfingar og ýmislegt!!
En það helst sem er að frétt af mér þessa stundina er þetta:
Var bara að detta inn úr dyrunum eftir að hafa verið í þvílíkri myndatöku skal ég segja ykkur!! Þetta var nefninlega myndataka fyrir plaggöt sem að við í ´Hljómsveit Ínu erum að gera til þess að auglýsa böll og annað í sumar... ýkt töff Ullandi Hróibjartur (Hrói) á örkinni fór með okkur í smá ferðalag um bæinn til þess að taka myndir við hinar og þessar aðstæður og má þar helst nefna, á klettsbrún, uppi í risa bensíngeymi,  hlaupandi um í lyngi og á trampólíni... Veðrið var kannski ekki það besta, mikið rok en það var í lagi þar sem að myndirnar áttu að túlka mikinn æsing og rokið hjálpaði stundum bara til við það sem var fínt. Svo er bara að sjá afraksturinn sem á að vera klár á þriðjudag en þá fara plaggötinn í dreifingu fyrir Sjalla ballið sem við höldum næstu helgi (24 júní)!!

Í gær fór ég í klippingu, var eitthvað að sendlast í vinnunni... jújú maður er núna kominn á sendilinn hjá Flytjanda og verð í því alla næstu viku líka... var að fara með einhverjar vörur í Metro, og pantaði mér svo bara klippingu uppá grínið í leiðinni (þurfti reyndar að fara í klippingu) en í einhverju flipp kasti ákvað ég bara að klippa mig stutt, og afraksturinn má sjá á meðfylgjandi mynd!! endilega kommentið á nýja lookið, betra eða verra?

Síðasta Mánudag fór ég til akureyrar í aldeilis skemmtilega ferð... en ég tók mér semsagt frí í vinnunni til þess að fara í Fluglæknisskoðun, og það er nú engin smá skoðun skal ég segja ykkur!
Byrjaði á því að fasta frá miðnætti kvöldið áður og míga í dollu þegar ég vaknaði, því að ég átti að koma með þvagprufu.... Mjög skemmtilegt að keyra svo með hana vogla í dollu hliðiná sér alla leið til Akureyrar... en ég setti dolluna nú í hvítann poka svo að þetta væri ekki eins kjánalegt!
Mætti á Spítalann um 9 og fór þá í blóðprufu, úff... þetta var ekkert mál þegar maður leit undann.. fyrst fékk stunguna og ekkert mál en svo þurfti ég að asnast til að kíkja á hvað væri verið að gera við hendina á mér á meðan á þessu stóð og þá fékk maður svimann.... að sjá blóðið spítast í eitthvað plast hylki er mjög æsandi Saklaus jæja, fyrsti hlutinn af mörgum búinn... mig svimaði svoldið eftir þetta en eftir að ég fékk eitthvað að éta í langann tíma þá jafnaði ég mig fljótt.. svo var það öndunarprófið, gekk bara mjög vel þar að sögn hjúkkunnar, alveg fullkomið. næst var Hjartalínurit og þar sást enginn galli á ferð og svo var mesta vesenið.... Heilalínurit... úff!!! þegar hjúkkan sagði mér að þetta myndi taka klst hélt ég að hún væri nú að grínast, en neinei... byrjað var á því að setja eitthvað feiti útum allt í hársvörðin og svo 25 leiðslum stungið í þetta feiti og svo á handabökin! svo átti maður bara að gjöra svo vel og leggjast á bekk, hjúkkan lækkaði ljósin og kveikti á útvarpinu... agalega kósý hjá okkur tvem inní þessu litla herbergi... úúúúú.... (ekkert að óttast Eyrún).. ég lá þarna í um 20 mín og á 5 mín fresti voru æfingar gerðar. Alltaf átti maður að liggja með augun lokuð, svo átti maður að blikka hratt augunum í mínotu, næst átti ég að anda hratt og djúpt í 3 mín og loks stillti hún flassi upp fyrir framan augun á mér og lét það blikka beint í augun, fyrst hægt og svo hraðaði hún alltaf á því og maður átti að skiptast á því að hafa augun lokuð eða opin og shitt hvað þetta var óþægilegt, sérstaklega í endann þegar flassið var á milljón, maður táraðist við það! með þessi var verið að kanna hvort ég væri nokkuð flogaveikur eða þess háttar en hún sagði að ég hafi staðið mig mjög vel og ekkert óeðlilegt hafi gerst, svo sá ég seinna að hún skrifaði í ástand á skýrslu um mig: "hraustu" öss!! skilst að það sé topp einkuninn í þessu, en maður fær samt ekki niðustöður úr, þvag og blóðprufu strax og heldur ekki úr heilalínuritinu. Næst var það Röntgen, teknar voru 2 myndir af lungunum á mér, fyrst beint og svo á hlið. Þarna var komið hádegi og ég fór bara og skellti mér á einn Subway bát. Þegar ég kom út sá ég stöðumælavörð vera að sekta einhvern bíl og hugsaði ég með mér "haha svekkjandi að eiga þennan bíl" en svo var mér litið á minn bíl og þá var sekt þar að fela sig undir rúðuþurkunni!!! grrrr, þá fattaði ég að þessar asnalegu bílastæðaklukkur væru byrjaðar þarna á akureyri... en svoleiðis klukka fylgdi sektinni þannig að ég lenti ekki aftur í svona veseni..Hlæjandi Fór svo í tíma hjá augnlækni sem sagði að ég væri með fullkomna sjón og svo fór ég til eyrnalæknis sem tók mig í hlustunarpróf, ég stressaðist svo upp í því að  ég fékk svona hjartslátt í eyrun þegar ég setti headfonana á hausinn (veit ekki hvort fólk þekkir það) en allavega, þá heyrði ég þá alltaf svona hjartslátt með og þá var erfitt að einbeita sér að heyra pípin.. En hann sagði svo að ég hefði alveg stórgóða heyrn og að hún ætti ekki eftir að fella mig... Þannig að ég er bara býsna ánægður með þessa ferð! Þannig að heylsan er í fullkomnu lagi fyrir þetta flugnám nema að ég veit ekki hvernig blóð og þvagprufan koma út og svo heilalínuritið. en maður vonar það besta...

jæja kommentið nú á nýja lookið á kallinum!!!
Bless í bili....!!

Reynir Aðalsteinn Hannesson
Kristján
 
krútt ;*
17. júní 2006 klukkan 01:03
Ingvar Björn
 
pældu í öllum kynsjúkdómunum sem þeir munu finna í þér (mikið að óttast Eyrún) ...;) haha spauuuuug!! .....ha? e-e-e-e-e-en þ-þ-þ-þ-eir v-v-v-v-voru bá-bá-báðir í horninu okkar??? hohohoho heilsist þér vel!! greinilega!
17. júní 2006 klukkan 07:55
Sömmerlúkkið, lýst vel á það. Sé samt ekki nógu vel á efri hluta höfuðsins, en held að þetta sé bara töff stöff.
Þetta flugnám er nú meira..

Ha de bra.
19. júní 2006 klukkan 23:03

Skrifa athugasemd